Lausa skrúfan 2026

Svava, Ingólfur, Sigurður og Inga Bryndís voru meðal þeirra sem stóðu vaktina á Glerártorgi.

Grófarfélagar stóðu fyrir vitundarvakningunni og fjáröflunarverkefninu Lausa Skrúfan í febrúar, annað árið í röð. Markmiðið var að vekja athygli á geðheilbrigði, geðvanda og geðheilsu almennt, en einnig að draga úr fordómum. Verkefninu auk þess ætlað að vera fjáröflun fyrir Grófina Geðrækt.

“Stórir sigrar geta gerst inni á stofu hjá sálfræðingum eða geðlæknum en stórir sigrar gerast líka bara í lífinu.” Sagði Inga Bryndís verkefnastjóri Lausu skrúfunnar í viðtali við Síðdegisútvarpið í tengslum við verkefnið. Þó svo að það sé mikilvægt að leita sér aðstoðar þegar þörf er á, er einnig mikilvægt að átta sig á hvað maður sjálfur getur gert til að hlúa að geðheilsunni. Hvers konar geðrækt getur þú stundað til að líða betur og styrkja andlega heilsu?

Verkefnið var fyrst og fremst kynnt á samfélagsmiðlum þar sem fólk var hvatt til að velta fyrir sér sínum eigin lausu skrúfum og geðrækt, en einnig fengum við tækifæri til að ræða verkefnið í útvarpinu og á netmiðlum. Fulltrúar Grófarinnar voru svo á Glerártorgi um miðjan febrúar og aftur í lok mánaðarins þar sem þau kynntu verkefnið, seldu Lausar skrúfur og áttu samtöl við gesti og gangandi. Viðbrögðin voru mjög góð. Fólk stoppaði við básinn á Glerártorgi til að spjalla, spyrja spurninga og deila eigin reynslu. Það er einstaklega dýrmætt að sjá hversu tilbúið fólk er að opna sig þegar því er gefið rými til þess.

Margir hafa komið að átakinu frá upphafi, bæði starfsmenn Grófarinnar, verktakar og sjálfboðaliðar. Það er erfitt að setja nákvæma tölu á fjöldann, en það er ljóst að án sjálfboðaliðanna væri þetta ekki hægt. Samvinna, gleði og góð stemming innan teymisins hefur sérstaklega staðið upp úr.

Stuðningur samfélagsins hefur einnig skipt miklu máli, en í ár studdu fyrirtækin FerroZinko g JMJ verkefnið með því að selja Lausu skrúfuna í búðunum hjá sér.

Lausa skrúfan mun að sjálfsögðu snúa aftur að ári liðnu – við erum bara rétt að byrja.

Takk fyrir stuðninginn, samtölin og samstöðuna.

Next
Next

Að vera með lausa skrúfu