Lausa skrúfan farin í loftið
Nú er febrúar - mánuður Lausu skrúfunnar - genginn í garð og vitundarvakningin okkar er farin í loftið. Við í Grófinni höfum setið hörðum höndum að undirbúningi síðastliðnar vikur. Lausa skrúfan er vitundarvakning um mikilvægi þess að hugsa vel um sína andlegu heilsu og berjast gegn sínum innri fordómum ekki síður en ytri.
Hér á síðunni vorum við að setja inn nýtt sjálfspróf sem við hvetjum fólk til að taka og athufa hvernig geðheilsan er um þessar mundir. Prófið er auðvitað bara til gamans gert og kemur ekki í staðinn fyrir faglegt mat.
Við verðum á Glerártorgi föstudaginn 13. febrúar milli klukkan 14 og 18, og aftur í enda mánaðarins, 26., 27. og 28. febrúar að selja Lausu skrúfuna. Við hlökkum til að sjá sem flesta!
Grófin Geðrækt hefur verið starfrækt af samnefndum félagasamtökum frá árinu 2013 og staðið þeim opin sem vilja nýta sér starfið án endurgjalds og tilvísana. Grófin er eeina opna geðræktarmiðstöðin á Norðurlandi og hefur aðstóknin verið vaxandi. Árlega koma nú um 350-500 manns; fólk af öllu Eyjafjarðarsvæðinu, Norðurlandi og reyndar víða af landinu. Í kringum 5500 heimsóknir á ári undanfarin ár, að meðaltali 24 á dag.